Flateyrarhreppur

Flateyrarhreppur

Flateyrarhreppur var hreppur í Vestur-Ísafjarðarsýslu, kenndur við Flateyri við Önundarfjörð.

Flateyri er sjávarþorp sem stendur á samnefndri eyri við norðanverðan Önundarfjörð. Þar búa um 300 manns. Þorpið er hluti af sveitarfélaginu Ísafjarðarbæ.

Í október árið 1995 féll gríðarlegt snjóflóð á þorpið og fórust 20 manns. Eftir það voru reistir gríðarmiklir snjóflóðavarnargarðar ofan við bæinn og hafa þeir a.m.k. einu sinni bjargað byggðinni frá flóði.

Fyrir ofan Flateyri er Eyrarfjall og nær brún þess í um 660 m. Í hlíðum Eyrarfjalls eru tvö gil, Innra-Bæjargil og Skollahvilft en úr þessum giljum hafa snjóflóðin sem falla í átt að Flateyri komið. Ofan byggðarinnar á Flateyri hafa verið byggðir tveir leiðigarðar til varnar snjóflóðum úr þessum giljum.

Lögbýlið Eyri stóð í brekku rétt fyrir ofan og utan Flateyri. Verslun hófst á Flateyri í lok 18. aldar. Íbúar voru um 100 árið 1890 en um það leyti hóf Hans Ellefsen hvalveiðar frá Flateyri og reisti íbúðarhús á Sólbakka. Í kjölfar þess fjölgaði íbúum hratt og voru þeir um 250 um aldamótin 1900. Flestir voru íbúar Flateyrar árið 1964 en þá voru þeir 550. Í maí árið 2007 tilkynntu eigendur Kambs, stærsta atvinnufyrirtæki Flateyrar, að þeir muni hætta útgerð og fiskvinnslu á Flateyri og selja allar eignir félagsins og þar með fiskveiðikvótann. Þar hafa starfað 120 manns, 65 í landvinnslu og sjómenn á fimm bátum.

Flateyrarhreppur varð til árið 1922 þegar Mosvallahreppi var skipt í tvennt. Hinn 1. júní 1996 sameinaðist Flateyrarhreppur 5 öðrum sveitarfélögum á Vestfjörðum: Ísafjarðarkaupstað, Mosvallahreppi, Mýrahreppi, Suðureyrarhreppi og Þingeyrarhreppi, undir nafninu Ísafjarðarbær. 1958 voru skráðar 8 bújarðir / lögbýli í Flateyrarhreppi en í dag er ekki stundaður búrekstur á neinni jörð nema í Fremri Breiðadal sem er nýtt til slægna og uppeldis á nautgripum. Aðrar jarðir í Flateyrarhreppi eru nýttar til slægna fyrir bændur í Önundarfirði og Súgandafirði

Skoða vef tengdan Flateyrarhreppi hér. flateyri.is/

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar