Norðurland eystra

Norðurland eystra

Norðurland eystra er hérað sem nær yfir austurhluta Norðurlands. Það var upphaflega skilgreint sem eitt af átta kjördæmum Íslands árið 1959 og náði yfir Eyjafjarðarsýslu, Suður-Þingeyjarsýslu og Norður-Þingeyjarsýslu ásamt með kaupstöðunum Akureyri, Ólafsfirði, Dalvík og Húsavík. Sjá grein um Norðurlandskjördæmi eystra varðandi úrslit alþingiskosninga í kjördæminu. Með breyttri kjördæmaskipan sem fyrst var kosið eftir 2003 var Norðurlandskjördæmi eystra sameinað Austurlandskjördæmi til að mynda Norðausturkjördæmi.
Eyjafjarðarsýsla Norður-Þingeyjarsýsla Suður-Þingeyjarsýsla
Suðurland Austurland Norðurland eystra Norðurland vestra Suðurnes Höfuðborgarsvæði Vesturland Vestfirðir