Hvammstangahreppur

Hvammstangahreppur

Hvammstangi er kauptún í Húnaþingi vestra. Hann var upphaflega í Kirkjuhvammshreppi en var gerður að sérstökum hreppi, Hvammstangahreppi, hinn 1. júlí 1938.

Hrepparnir tveir sameinuðust á ný 7. júní 1998 ásamt hinum 5 hreppunum í Vestur-Húnavatnssýslu: Staðarhreppi, Fremri-Torfustaðahreppi, Ytri-Torfustaðahreppi, Þverárhreppi og Þorkelshólshreppi undir nafninu Húnaþing vestra.

Hvammstangi var gerður að viðurkenndum verslunarstað árið 1895 en þá voru engin íbúðarhús á staðnum. Hið fyrsta slíka var byggt árið 1900. Þá hófust einnig fiskveiðar þar á tanganum og eru hafnarskilyrði þar nú góð. Mest er veitt af rækju og grásleppu.

Á Hvammstanga er margvísleg þjónusta fyrir sveitirnar í Húnaþingi vestra. Hitaveita Húnaþings vestra á Laugarbakka sér Hvammstanga fyrir heitu vatni en þangað var lögð hitaveituæð 1972. Vatnsveita kom í plássið 1952 en áður hafði hvert hús haft eigin brunn.

Læknir hefur haft aðsetur sitt á Hvammstanga allt frá 1905 en hann þjónaði jafnframt héraðinu. Á árunum 1979 til '81 var heilsugæsla byggð á staðnum.

12. janúar 2007 opnaði Fæðingarorlofssjóður starfsemi sína á Hvammstanga.

25. júní 2006 var opnað Selasetur á Hvammstanga. Hús Verslunar Sigurðar Pálmasonar, sem reist var 1926, hýsir Selasetrið. Í Selasetrinu má nálgast fróðleik í máli og myndum um seli og ýmsa hjátrú tengda þeim. Eitt aðgengilegasta selalátur landsins er á Vatnsnesi, norður af Hvammstanga.

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar