Tálknafjarðarhreppur

Tálknafjarðarhreppur

Tálknafjörður er fjörður á vestanverðum Vestfjörðum og einn af Suðurfjörðum Vestfjarða.

Við fjörðinn stendur samnefnt þorp þar sem 306 manns bjuggu þann 1. janúar 2011.

Fjörðurinn er nefndur eftir Þorbirni 'Tálkna' úr Suðureyjum við Skotland, sem fyrstur manna nam þar land.

Þorpið Tálknafjörður stendur í landi Tungu, það byggðist í kringum bryggju og hafnaraðstöðu sem byrjað var að reisa um 1945 og var viðurkennt sem kauptún árið 1967.

Í Tálknafirði er sparisjóður þar sem einnig er póstafgreiðsla, matvöruverslun, tvö vélaverkstæði og bensínsala auk Veitingahússins Hópsins sem dregur nafn sitt af innri hluta fjarðarins.

Sundlaugin og íþróttahúsið standa í landi Eyrarhúsa á ofanverðum Sveinseyraroddanum ásamt skólahúsinu sem vígt var 1967 og stækkað fyrir nokkrum árum. Sundlaugin sem var upphaflega byggð upp úr 1930 og stækkuð 1987, er 25 m löng með tveimur heitum pottum og vel hirtu umhverfi.Við hana er mjög gott og vel búið tjaldstæði og í íþróttahúsinu er góð aðstaða fyrir hvers konar fundarhöld auk íþróttaaðstöðu. Fyrir ofan tjaldstæðið er Guðmundarlundur, skógarreitur sem byrjað var að gróðursetja í fyrir 1940 af börnum í Tálknafirði, þar eru margar plöntutegundir og sumar sjaldgæfar á Vestfjörðum eins og til dæmis bláklukkan sem vex alla jafna ekki villt á Vestfjörðum.

Skógaráhugamenn í Tálknafirði hafa haldið gróðursetningarstarfi áfram og nú nær skógræktin upp undir Bæjarfjall fyrir ofan tjaldstæðið og upp að Hólsá sem rennur framhjá þorpinu. Frá tjaldstæðinu og upp í þorp liggur göngustígur sem kallaður er Brynjólfsbraut, til heiðurs Brynjólfi Gíslasyni sem var sveitarstjóri í Tálknafjarðarhrepp í mörg ár og mikill áhugamaður um skógrækt.

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar