Kaldrananeshreppur

Kaldrananeshreppur

Kaldrananeshreppur í Strandasýslu nær frá Selá í Steingrímsfirði að sunnan að Spena norðan við Kaldbaksvík.

Í hreppnum er þorpið Drangsnes á Selströnd norðan við Steingrímsfjörð.
Nokkur byggð er einnig í Bjarnarfirði milli Steingrímsfjarðar og Kaldbaksvíkur.
Árið 1858 voru skráðar alls 24 jarðir /lögbýli í Kaldrananeshreppi.

Drangsnes er lítið þorp á Selströnd yst við norðanverðan Steingrímsfjörð í Strandasýslu. Íbúar í Kaldrananeshreppi voru 110 (í árslok 2010) og hefur lítið fækkað síðastliðin ár.
Í Hveravík skammt innan við þorpið eru heitir hverir í fjöruborðinu alveg í vegarkantinum. Þar lifa sérstakar hitaþolnar flær. Þar var áður sundlaug.
Í nágrenninu er Strákatangi þar sem hafist var handa haustið 2005 við fornleifauppgröft á hvalveiðistöð Baska frá 17. öld.

Á Drangsnesi er löndunarbryggja, en 2,5 km innan við þorpið, í Kokkálsvík, er viðleguhöfn. Yst í þorpinu, þar sem heita Grundir, er sérkennilegur steindrangur, sem heitir Kerling. Þorpið dregur nafn af þessum drangi, en þjóðsagan segir að hann hafi verið eitt af þremur tröllum sem reyndu að grafa Vestfirði frá meginlandinu.

Fyrir ofan þorpið er Bæjarfell (344 m). Þaðan er víðsýnt og er þægileg gönguleið á fellið. Við mynni Steingrímsfjarðar utan við Drangsnes er Grímsey, sannkölluð náttúruperla. Þar er stór lundabyggð.
Einungis 10 mínútna sigling er út í eyjuna og eru ferðir til Grímseyjar á sumrin með bátnum Sundhana, sem einnig býður upp á sjóstangaveiði.

Árið 1996 fannst heitt vatn við borun í miðju þorpinu og var lögð hitaveita í öll hús. Í fjöruborðinu neðan við þorpið eru heitir pottar, sem öllum er frjálst að nýta sér, wc og skiptiklefar voru opnaðir sumarið 2011 og eru þeir staðsettir hinum meginn við götuna.

Sumarið 2005 var Sundlaugin á Drangsnesi opnuð, en hún er útisundlaug með vaðlaug, heitum potti og eimbaði.

Drangsnesingar hafa haldið Bryggjuhátíð árlega frá 1996 og dregur hún til sín fjölda fólks hvert sumar.
Flestir Drangsnesingar taka þátt í undirbúningi hátíðarinnar í sjálfboðavinnu.

Á Drangsnesi er boðið upp á gistingu í tveggja manna herbergjum og einnig á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði.

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar