Árneshreppur

Árneshreppur

Árneshreppur er nyrsta sveitarfélagið í Strandasýslu og afskaplega landmikið. Í suðri nær hreppurinn frá Spena undir Skreflufjalli á milli eyðibýlanna Kaldbaks og Kolbeinsvíkur og að norðanverðu að Geirólfsgnúp fyrir norðan Skjaldabjarnarvík.

Árneshreppur er stundum nefndur Víkursveit eftir búsældarlegasta hluta sveitarfélagsins, Trékyllisvík, og er það fornt nafn á hreppnum.

Trékyllisvík var vettvangur hörmulegra atburða á tímum galdraofsókna á 17. öld, en þar voru þrír galdramenn brenndir árið 1654 í klettagjá sem kallast Kistan.
Á svæðinu urðu til vísar að þéttbýli á 20. öld í Kúvíkum, Gjögri og Djúpavík, einkum í tengslum við hákarlaveiðar og síldveiðar, og eru þar miklar menjar um atvinnulíf og mannlíf.

Verslunarstaður er í Norðurfirði, rekinn af Kaupfélagi Steingrímsfjarðar á Hólmavík. Árneshreppur er fámennasta sveitarfélag Íslands með 54 íbúa 1. janúar 2013. Í sveitarfélaginu býr að meðaltali 0.07 manns á km².

Árið 1858 voru skráðar alls 28 jarðir / lögbýli og ein verslunarlóð í Árneshreppi.
Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar