Svalbarðshreppur

Svalbarðshreppur

Svalbarðshreppur er hreppur á austanverðri Melrakkasléttu og upp af Þistilfirði. Aðal atvinnuvegur er landbúnaður. Ekkert aðalskipulag er í gildi, en samkvæmt lögum þarf að vera búið að vinna slíkt árið 2008.

Í Landnámabók segir að Ketill þistill hafi numið land milli Hundsness og Sauðaness og af honum dregur fjörðurinn og landið upp af honum nafn sitt. Hreppurinn er nefndur eftir kirkjustaðnum Svalbarði. Um hreppinn renna nokkrar vatnsmiklar ár sem skipta firðinum þannig í landareignir en flestar þessar ár eru miklar laxveiðiár. Sauðfjárrækt er algengasti búskaparhátturinn en þar eru veður svöl og kalár mörg. Hlunnindi á borð við dúntekju og reka er í hreppnum.

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar