Seyðisfjarðarhreppur

Seyðisfjarðarhreppur

Seyðisfjarðarhreppur var hreppur í Seyðisfirði á Austfjörðum. Heyrði hann undir Norður-Múlasýslu.
Á 19. öld óx upp útgerðarbær í botni fjarðarins. Fékk hann kaupstaðarréttindi sem Seyðisfjarðarkaupstaður í ársbyrjum 1895 og var skilinn frá hreppnum.
Hinn 1. apríl 1990 sameinaðist Seyðisfjarðarhreppur Seyðisfjarðarkaupstað á ný, að þessu sinni undir merkjum kaupstaðarins.

Seyðisfjörður er kaupstaður í botni samnefnds fjarðar á Austfjörðum. Staðurinn óx kringum síldveiðar- og vinnslu.

Seyðisfjörður er þekktur fyrir fjölskrúðugt menningarlíf en þar er árlega haldin Listahátíðin Á seyði en partur af henni eru sumartónleikaröðin Bláa kirkjan og LungA (Listahátíð ungs fólks, Austurlandi). Auk þess heldur safnið árlega Smiðjuhátíð vikuna eftir Lunga.
Á Seyðisfirði má einnig finna myndlistarmiðstöðina Skaftfell sem stendur fyrir myndlistasýningum allt árið.
Í bænum er einnig eina starfandi kvikmyndahúsið á Austurlandi. Bærinn á sér merka sögu sem hægt er að kynna sér með því að heimsækja Tækniminjasafn Austurlands sem hefur á safnasvæði sínu meðal annars elstu vélsmiðju landsins og fyrstu ritsímastöð landsins.
Fjarðarselsvirkjun (gangsett 1913), sem er í eigu Rarik, er fyrsta riðstraums- og bæjarveitan á Íslandi. Árið 2003 var stöðvarhúsið gert upp og á efri hæðinni komið fyrir sýningu.

Til Seyðisfjarðar siglir færeyska ferjan Norræna frá Færeyjum en þaðan siglir hún jafnframt til Danmerkur.
Er þetta eina leiðin fyrir þá sem vilja fara til og frá Íslandi með bíl (utan þess að flytja bílinn með gámaskipi).

Þar hefur verið sjálfvirk veðurathugunarstöð síðan 1995.

Íþróttafélög á Seyðisfirði eru Íþróttafélagið Huginn (knattspyrna, handbolti, blak, og fleira), Viljinn (Boccia), Golfklúbbur Seyðisfjarðar (golf) og 06. apríl (knattspyrna). Auk þess starfar SkíS skíðafélagið í Stafdal í Stafdal, en það er félag sem er sameiginlegt skíðafélag íbúa Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar.

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar