Dynjandi, Snæfj.hr (Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar)

Dynjandi, Snæfj.hr
  • Landnumer: 0
  • Sveitafélag:
  • Stærð jarðar: ha. 0.00
  • Ræktað land: ha. 0
  • Stærð að fornu mati í hundr.: 0.00
Á Dynjanda var enn bænhús í upphafi 18. aldar samkvæmt Jarðabókinni, en sagt er að tíðir hafi ekki verið þar veittar í hálfa öld eða lengur.

Ábúendur



 
 

Ferðaþjónusta

Á Dynjanda var enn bænhús í upphafi 18. aldar samkvæmt Jarðabókinni, en sagt er að tíðir hafi ekki verið þar veittar í hálfa öld eða lengur. Á Dynjanda eru ellefu heimilismenn árið 1703 og einum fleiri árið 1801, en þá er þríbýli á jörðinni. Eigendur árið 1703 eru þeir bræður Sr. Gísli Hannesson á Snæfjöllum og Benedikt Hannesson á Hóli í Bolungarvík. Þeir bræður áttu þá einnig Tyrðilmýri á Snæfjallaströnd saman auk þess sem Gísli var eigandi Snæfjallastaðar.

Á Fremri bænum á Dynjanda reistu Benedikt Benediktsson og Rósa Elíasdóttir fyrsta timburhúsið í Grunnavíkurhreppi árið 1906. Þau ráku um tíma útibú Ásgeirsverslunar niðri við sjóinn undan Dynjanda. Samtímis þeim á Neðri bænum bjuggu Einar Bæringsson og Engilráð, systir Benedikts. Synir þeirra, Alexander og Jóhannes voru síðustu ábúendur á Neðri bænum, en þaðan fluttu þeir ásamt fjölskyldum sínum árið 1948. Jóhannes og kona hans, Rebekka Pálsdóttir frá Höfða, fluttu að Bæjum á Snæfjallaströnd.

Síðustu ábúendur á Dynjanda voru Hallgrímur Jónsson og Krist