Grímseyjarhreppur

Grímseyjarhreppur

Grímsey liggur á heimskautsbaug, 41 km frá norðurströnd Íslands. Hún er 5,3 ferkílómetrar að flatarmáli og 5,5 km að lengd. Eyjan er mynduð úr blágrýti og myndar það víða afar fallegt stuðlaberg sem er vinsælt myndefni ljósmyndara.
Grímsey hallar frá austri til vesturs. Að austan ganga há björg í sjó fram og er bjargbrúnin 105 m yfir sjó þar sem hún er hæst.
Að vestan er eyjan lægri og þar er höfnin og byggð eyjarinnar. Frá eyjunni er fögur fjallasýn frá suðvestri til suðausturs.

Byggð hefur verið í Grímsey frá landnámi og var eyjan jafnan talin matarkista vegna hins gjöfula lífríkis sem þar er að finna. Þjóðsaga tengir nafn eyjarinnar við landnámsmanninn Grím frá Sogni í Noregi en aðrar skýringar kunna einnig að vera á nafninu sem á sér samsvaranir m.a. í Noregi og á Bretlandseyjum. Eyjan var til forna í eigu Munkaþverár og Möðruvallaklaustra. Voru bændur í eyjunni leiguliðar og greiddu landsskuldina í skreið til klaustranna.

Í Grímsey búa um 90 manns. Aðalatvinnuvegur eyjarbúa er fiskveiðar og fiskverkun. Landbúnaður til heimilisnota hefur verið stundaður frá upphafi en mjög hefur dregið úr honum á síðustu árum og hefur kúabúskapur nú lagst af.

Í Grímsey er verslun, tvö gistiheimili, veitingastaður, handverkshús, kaffihús, sundlaug, félagsheimili og tjaldsvæði. Þjónusta við ferðamenn er vaxandi. Fastar flugferðir eru þangað frá Akureyri og skipsferðir með ferju frá Dalvík. Raforka í Grímsey er framleidd með díselrafstöð og kælivatn frá rafstöðinni nýtist sundlauginni á staðnum.
Vorið 2009 samþykktu íbúar Grímseyjar og Akureyrar með miklum meirihluta að sameina sveitarfélögin. Eyjarnar Hrísey og Grímsey eru því báðar hluti Akureyrarkaupstaðar.
Sjá nánar um Grímsey á grimsey.is

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar