Bólstaðarhlíðarhreppur

Bólstaðarhlíðarhreppur

Bólstaðarhlíðarhreppur var hreppur í Austur-Húnavatnssýslu fram til ársloka 2005.
Aðalatvinnuvegur er landbúnaður. Fólksfjöldi 1. desember 2005 var 115.

Hreppurinn náði yfir Blöndudal austan Blöndu, fremri hluta Langadals og Laxárdals og allan Svartárdal.
Fremst í Svartárdal er Stafnsrétt, þangað sem rekið er fé af Eyvindarstaðaheiði.

Yst í Svartárdal er félagsheimilið Húnaver, vígt 1957.
Fyrir tæpum 90 árum (1924) var stofnaður í sveitinni Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps sem æfði í fyrstu til skiptis á bæjunum en æfir nú í Húnaveri.

Hinn 1. janúar 2006 sameinaðist Bólstaðarhlíðarhreppur Áshreppi, Sveinsstaðahreppi, Svínavatnshreppi og Torfalækjarhreppi og er hið nýja sveitarfélag kallað Húnavatnshreppur.

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar